Lén og skilríki
DNS-færslur, TLS-skilríki, WHOIS og bakvísun fyrir þau lén og vistföng sem þú tilgreinir. Byggt á Fetch.
Þjónusta / 12 · External attack-surface monitoring
Það sem snýr út á netið breytist án þess að nokkur ákveði það: skilríki renna út, færslur breytast, nýr veikleiki er birtur. Vöktunin fylgist með þessu fyrir þau lén og vistföng sem þú tilgreinir. Hún er byggð á verkfærum Garms og flettir aðeins upp opinberum upplýsingum. Hún skannar ekki kerfin þín og kemur ekki í stað öryggisvaktar.
01 / Umfang
DNS-færslur, TLS-skilríki, WHOIS og bakvísun fyrir þau lén og vistföng sem þú tilgreinir. Byggt á Fetch.
SPF, DKIM, DMARC og BIMI fyrir lénin þín. Byggt á Dmark.
Nýir alvarlegir veikleikar sem verið er að misnota, bornir saman við þær vörur sem þú hefur skráð. Byggt á Critical.is.
02 / Aðferð
Þú tilgreinir lén, vistföng og vörur. Ekkert annað er vaktað.
Aðeins opinberar upplýsingar. Engar skannanir og engar innskráningar.
Breytingar og ný atriði berast skriflega með því millibili sem samið er um. Engum viðbragðstíma er lofað.
03 / Verkefnið
Lengd ræðst af stærð árásarflatarins sem er innan umfangs.
Engin verðskrá. Fast verðtilboð fylgir afmörkun.
Lægra verðtilboð býðst ef þú samþykkir skriflega að við prófun á því sem snýr út á netið megi nota gervigreindarlíkön þar sem rekstraraðili líkansins getur geymt það sem því er sent. Sjá spurt og svarað.
04 / Afurðir
05 / Hlíting
Niðurstöður úr þessari þjónustu eru að jafnaði notaðar sem gögn gagnvart þessum kröfum:
Styður við og leggur til gögn. Hvorki vottun né trygging fyrir hlítingu. Hvaða kröfur eiga við þig ræðst af þinni starfsemi.
06 / Framkvæmd

Andri Pétur Hafþórsson vinnur verkið sjálfur. ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.
Um Andra