Þjónusta / 13 · Training sessions

Stuttar fræðslulotur

Ein lota, einn hópur, eitt efni. Fræðslan er sniðin að hópnum og byggir á því sem prófanir leiða í ljós. Lengd og efni eru ákveðin fyrirfram.

Framkvæmd
Andri Pétur Hafþórsson
Umfang
Afmarkað skriflega fyrir hvert verkefni
Afurð
Skriflegar niðurstöður og næstu skref
Verð
Fast tilboð eftir afmörkun

01 / Umfang

Þrír hópar

01

Forritarar

Algengir veikleikar í vefkerfum og forritaskilum: hvernig þeir verða til og hvernig þeir eru lagaðir.

02

Kerfisstjórar

Aðgangur, stillingar og tölvupóstur: það sem oftast stendur opið.

03

Stjórnendur

Hvað prófun sýnir, hvað hún sýnir ekki og hvaða ákvarðanir fylgja niðurstöðunum.

02 / Aðferð

Hvernig er unnið

01

Efni

Ákveðið með þér fyrirfram: hópur, áherslur og lengd.

02

Lota

Andri heldur lotuna sjálfur.

03

Eftirfylgni

Efni lotunnar afhent skriflega.

03 / Verkefnið

Umfang, lengd og það sem þarf

Dæmi um umfang

  • Ein lota fyrir þróunarteymi.
  • Lota fyrir stjórnendur í kjölfar prófunar.

Hvað ræður lengd

  • Stærð hópsins.
  • Fjöldi efnisþátta.
  • Hvort lotan fylgir prófun eða stendur ein.

Það sem þú leggur til

  • Hópinn og hlutverk hans.
  • Efnið sem á að leggja áherslu á.
  • Stað eða fjarfund.

Engin verðskrá. Fast verðtilboð fylgir afmörkun.

Lægra verðtilboð býðst ef þú samþykkir skriflega að við prófun á því sem snýr út á netið megi nota gervigreindarlíkön þar sem rekstraraðili líkansins getur geymt það sem því er sent. Sjá spurt og svarað.

04 / Afurðir

Það sem þú færð

  • Ein lota fyrir þann hóp sem samið er um
  • Efni lotunnar skriflega

05 / Hlíting

Hvað niðurstöðurnar styðja

Niðurstöður úr þessari þjónustu eru að jafnaði notaðar sem gögn gagnvart þessum kröfum:

NIS2
Ráðstafanir skulu prófaðar og virkni þeirra metin, veikleikar meðhöndlaðir og starfsfólk þjálfað (21. gr.).
DORA
Prófunaráætlun fyrir upplýsingakerfi, þar á meðal veikleikamat og innbrotsprófanir (24. og 25. gr.). Ógnamiðaðar prófanir (TLPT, 26. gr.) lúta sérstökum kröfum og falla utan þessa yfirlits.
ISO/IEC 27001
Stýringar í viðauka A um tæknilega veikleika, öryggisprófanir, óháða rýni og fræðslu.
PCI DSS
Innbrotsprófanir og staðfesting á lagfæringum (krafa 11.4). Ársfjórðungslegar ytri skannanir viðurkennds skönnunaraðila (ASV) falla utan þessa yfirlits.

Styður við og leggur til gögn. Hvorki vottun né trygging fyrir hlítingu. Hvaða kröfur eiga við þig ræðst af þinni starfsemi.

06 / Framkvæmd

Andri Pétur Hafþórsson vinnur verkið sjálfur. ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.

Um Andra

Hver þarf að vita meira?