Tilbúið dæmi

Dæmi um skýrslu

Svona er skýrsla byggð upp og svona eru veikleikar skráðir. Allt á þessari síðu er tilbúningur: fyrirtækið, kerfið og veikleikarnir eru ekki til.

Dæmi. Ekki raunveruleg skýrsla og ekki raunverulegur veikleiki. example.is er frátekið lén fyrir dæmi.

01 / Uppbygging

Kaflar skýrslunnar

  1. 01

    Samantekt

    Hvað var prófað, hvað fannst og hvað þarf að laga fyrst. Ein síða.

  2. 02

    Umfang og heimild

    Hvað var innan umfangs, hvað ekki, og hver veitti heimildina.

  3. 03

    Framkvæmd

    Hvenær prófað var og hvernig, í stuttu máli.

  4. 04

    Veikleikar

    Ein færsla fyrir hvern veikleika: einkunn, hvað, hvar, sönnun og lagfæring.

  5. 05

    Endurprófun

    Staða hvers veikleika eftir lagfæringu, þegar endurprófað hefur verið.

02 / Veikleikar

Tvær færslur úr skýrslu

Veikleikar eru metnir á Garmur-kvarðanum: einkunn frá 0 til 100 úr fimm þáttum með uppgefnu vægi. Kvarðinn er eigin kvarði Garms og byggir á þáttunum sem Critical.is notar. CVSS-einkunn og vektor eru sýnd við hliðina.

DÆMI-01Tilbúið dæmi

Pöntun annars viðskiptavinar sótt með því að breyta númeri

Garmur-kvarðinn

75af 100Brýnt

Svona varð einkunnin til
Tæknilegur alvarleikiGrunneinkunn 6,5 × 320 / 30
SönnunNýttur í prófuninni25 / 25
BerskjöldunAf netinu, með aðgangi12 / 20
FengurGögn eða aðgangur annarra notenda8 / 15
KeðjaTengist öðrum veikleika í skýrslunni10 / 10
Garmur-kvarðinnBrýnt75 / 100
CVSS

CVSS 3.1 grunneinkunn: 6,5

CVSS:3.1/AV:N/AC:L/PR:L/UI:N/S:U/C:H/I:N/A:N
Hvað

Forritaskilin skila pöntun eftir númeri án þess að athuga hvort innskráður notandi eigi pöntunina.

Hvar
https://app.example.is/api/orders/{id}
Sönnun

Notandi A er skráður inn og sækir pöntun sem notandi B á:

GET /api/orders/1042 HTTP/1.1
Host: app.example.is
Authorization: Bearer <tóki notanda A>

HTTP/1.1 200 OK
{ "id": 1042, "customer": "Notandi B", "address": "Dæmigata 1" }
Áhrif

Hver innskráður notandi getur lesið pantanir allra annarra með því að telja upp númer.

Keðja

DÆMI-02 → DÆMI-01. Utanaðkomandi stofnar aðgang (DÆMI-02) og les með honum pantanir allra viðskiptavina (þessi veikleiki).

Lagfæring

Athuga á netþjóni að pöntunin tilheyri innskráðum notanda áður en henni er skilað. Sama athugun á öllum endapunktum sem taka við auðkenni.

Eftir endurprófun

Lagaður. Sama kall skilar nú 404.

DÆMI-02Tilbúið dæmi

Aðgangur stofnaður án boðs

Garmur-kvarðinn

71af 100Brýnt

Svona varð einkunnin til
Tæknilegur alvarleikiGrunneinkunn 5,3 × 316 / 30
SönnunNýttur í prófuninni25 / 25
BerskjöldunAf netinu, án aðgangs20 / 20
FengurEkkert umfram eigin gögn0 / 15
KeðjaTengist öðrum veikleika í skýrslunni10 / 10
Garmur-kvarðinnBrýnt71 / 100
CVSS

CVSS 3.1 grunneinkunn: 5,3

CVSS:3.1/AV:N/AC:L/PR:N/UI:N/S:U/C:N/I:L/A:N
Hvað

Viðskiptavinasvæðið er aðeins ætlað boðnum viðskiptavinum. Endapunkturinn fyrir nýskráningu tekur við hverjum sem er.

Hvar
https://app.example.is/api/register
Sönnun

Beiðni utan frá, án boðs og án aðgangs:

POST /api/register HTTP/1.1
Host: app.example.is
Content-Type: application/json

{ "email": "[email protected]", "password": "<lykilorð>" }

HTTP/1.1 201 Created
{ "id": 2291, "role": "customer" }
Áhrif

Hver sem er á netinu getur stofnað aðgang. Einn og sér geymir aðgangurinn ekkert.

Keðja

DÆMI-02 → DÆMI-01. Aðgangurinn sem hér er stofnaður dugar til að lesa pantanir allra viðskiptavina (DÆMI-01).

Lagfæring

Taka aðeins við nýskráningu með gildu boði sem er athugað á netþjóni.

Eftir endurprófun

Lagaður. Sama kall skilar nú 403.

Veikleikarnir tveir mynda keðju og fá 10 stig hvor fyrir það. Stakir fengju þeir 65 og 61.

Garmur-kvarðinn útskýrður

Viltu svona skýrslu um þitt kerfi?

Bóka samtal