Mat á veikleikum

Garmur-kvarðinn

Hver veikleiki í skýrslu fær einkunn frá 0 til 100. Einkunnin er sett saman úr fimm þáttum með uppgefnu vægi, svo þú sérð hvernig hver tala varð til.

01 / Þættir

Fimm þættir, hundrað stig

Hver þáttur gefur stig upp að vægi sínu. Stigin eru lögð saman. CVSS-grunneinkunn er margfölduð með 3 og námunduð að heilli tölu.

ÞátturVægiÞrep og stigUppruni í Critical.is
Tæknilegur alvarleikiCVSS-grunneinkunn veikleikans, frá 0 til 10.30
  • CVSS-grunneinkunn × 30–30
CVSS · 30. Óbreytt.
SönnunÞað sem prófunin sjálf sýndi.25
  • Nýttur í prófuninni25
  • Ekki nýttur, en opinber tól duga til12
  • Fræðilegur0
KEV · 30 og opinber árásarkóði · 10. Misnotkun í raun verður að nýtingu í prófuninni.
BerskjöldunHvaðan næst til veikleikans og hvort til þess þarf aðgang. Á það sem er opið af netinu án aðgangs má ráðast með sjálfvirkum tólum.20
  • Af netinu, án aðgangs20
  • Af netinu, með aðgangi12
  • Aðeins af innra neti5
EPSS · 20 og SSVC · 10. Líkur á árás verða að því hver nær til veikleikans.
FengurGögn eða aðgangur sem náðist í prófuninni.15
  • Full stjórn á kerfinu eða öll gögn þess15
  • Gögn eða aðgangur annarra notenda8
  • Ekkert umfram eigin gögn0
Nýr þáttur. Veikleikaskrá sér ekki hvað árásaraðili fær í hendur.
KeðjaHvort veikleikinn tengist öðrum veikleika í sömu skýrslu og nær þannig lengra. Skýrslan nefnir keðjuna.10
  • Tengist öðrum veikleika í skýrslunni10
  • Stendur stakur0
Nýr þáttur. Veikleikaskrá metur einn veikleika í einu.

02 / Flokkar

Hvað einkunnin þýðir

Flokkurinn segir hvað á að laga fyrst. Hann kemur ekki í stað CVSS: hver veikleiki sýnir CVSS-einkunn og vektor við hlið einkunnarinnar á Garmur-kvarðanum.

EinkunnFlokkurMerking
80–100TafarlaustLagað á undan öllu öðru.
60–79BrýntLagað í næstu lotu.
40–59Á áætlunSett á áætlun um lagfæringar.
20–39Við tækifæriLagað næst þegar unnið er í kerfinu.
0–19Til skráningarSkráð. Kallar ekki á aðgerð eitt og sér.

03 / Uppruni

Byggt á þáttum Critical.is

Critical.is raðar birtum veikleikum eftir forgangseinkunn frá 0 til 100: CVSS 30, þekkt misnotkun (CISA KEV) 30, EPSS 20, opinber árásarkóði 10 og SSVC 10. Sú einkunn les opinberar skrár.

Innbrotsprófun hefur það sem skrárnar vantar: prófunina sjálfa. Á Garmur-kvarðanum víkja merkin úr skránum fyrir því sem prófunin sýndi. Þekkt misnotkun og opinber árásarkóði verða að sönnun. EPSS og SSVC verða að berskjöldun. CVSS stendur óbreytt.

Tveir þættir eru nýir, því aðeins prófun getur metið þá: fengurinn, og hvort veikleikinn myndar keðju með öðrum og nær þannig meiri aðgangi eða gögnum.

Garmur-kvarðinn er eigin kvarði Garms. Hann er ekki staðall og enginn annar hefur vottað hann eða sannreynt.