Auðkenni og aðgangur
Hver kemst inn og með hvaða réttindum: hlutverk, fjölþátta auðkenning og skilyrtur aðgangur.
Þjónusta / 09 · Cloud configuration review
Flest atvik í skýinu byrja á stillingu, ekki á veikleika. Garmur fer yfir stillingarnar með lesaðgangi og engu er breytt. Niðurstaðan er listi yfir það sem stendur opið, raðað eftir því hvað þarf að laga fyrst.
01 / Umfang
Hver kemst inn og með hvaða réttindum: hlutverk, fjölþátta auðkenning og skilyrtur aðgangur.
Geymslur, þjónustur og deilingar sem eru opnar út á netið.
Hvort atvik skilji eftir sig spor og hvort einhver sjái þau.
02 / Reglur
Engin prófun hefst án hennar.
Prófað er það sem umfangið nefnir. Ekkert utan þess er snert.
Hverjum veikleika fylgir sönnun þess að hægt sé að nýta hann.
03 / Verkefnið
Lengd ræðst af stærð árásarflatarins sem er innan umfangs.
Afmarkaðir pakkar innihalda eina endurprófun. Í öðrum verkefnum er endurprófun boðin með tilboðinu eða pöntuð sér. Innifalin endurprófun stendur til boða í þrjá mánuði frá afhendingu skýrslunnar.
Engin verðskrá. Fast verðtilboð fylgir afmörkun.
Lægra verðtilboð býðst ef þú samþykkir skriflega að við prófun á því sem snýr út á netið megi nota gervigreindarlíkön þar sem rekstraraðili líkansins getur geymt það sem því er sent. Sjá spurt og svarað.
04 / Afurðir
# Hver veikleiki í skýrslunni
hvað: lýsing á veikleikanum
hvar: kerfið eða staðurinn þar sem hann fannst
sönnun: hvernig sýnt var fram á hann
lagfæring: ráðlegging um úrbætur05 / Hlíting
Niðurstöður úr þessari þjónustu eru að jafnaði notaðar sem gögn gagnvart þessum kröfum:
Styður við og leggur til gögn. Hvorki vottun né trygging fyrir hlítingu. Hvaða kröfur eiga við þig ræðst af þinni starfsemi.
06 / Framkvæmd

Andri Pétur Hafþórsson vinnur verkið sjálfur. ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.
Um Andra