Auðkenning
Hvernig forritaskilin vita hver kallar: lyklar, tókar og lotur.
Þjónusta / 03 · API testing
Forritaskil eru oft stysta leiðin að gögnunum. Þau eru prófuð sér, án viðmótsins sem felur þau: hver má kalla, hvað fær hann til baka og hvað gerist þegar kallað er öðruvísi en til stóð.
01 / Umfang
Hvernig forritaskilin vita hver kallar: lyklar, tókar og lotur.
Hvort einn notandi nær í gögn annars, eða hlutverk fær meira en því ber.
Hvað gerist þegar köllin koma í annarri röð, með öðrum gildum eða oftar en gert var ráð fyrir.
02 / Reglur
Engin prófun hefst án hennar.
Prófað er það sem umfangið nefnir. Ekkert utan þess er snert.
Hverjum veikleika fylgir sönnun þess að hægt sé að nýta hann.
03 / Verkefnið
Lengd ræðst af stærð árásarflatarins sem er innan umfangs.
Afmarkaðir pakkar innihalda eina endurprófun. Í öðrum verkefnum er endurprófun boðin með tilboðinu eða pöntuð sér. Innifalin endurprófun stendur til boða í þrjá mánuði frá afhendingu skýrslunnar.
Engin verðskrá. Fast verðtilboð fylgir afmörkun.
Lægra verðtilboð býðst ef þú samþykkir skriflega að við prófun á því sem snýr út á netið megi nota gervigreindarlíkön þar sem rekstraraðili líkansins getur geymt það sem því er sent. Sjá spurt og svarað.
04 / Afurðir
# Hver veikleiki í skýrslunni
hvað: lýsing á veikleikanum
hvar: kerfið eða staðurinn þar sem hann fannst
sönnun: hvernig sýnt var fram á hann
lagfæring: ráðlegging um úrbætur05 / Hlíting
Niðurstöður úr þessari þjónustu eru að jafnaði notaðar sem gögn gagnvart þessum kröfum:
Styður við og leggur til gögn. Hvorki vottun né trygging fyrir hlítingu. Hvaða kröfur eiga við þig ræðst af þinni starfsemi.
06 / Framkvæmd

Andri Pétur Hafþórsson vinnur verkið sjálfur. ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.
Um Andra